"Velkominn"

Stundum á ég erindi í Ríkisútvarpið (RÚV) vegna viðtala sem óskað er eftir - og loks læt ég verða af því að geta þess sem ég hugsa í hvert skipti sem ég kem þar í anddyrið; hugsunin tengist því reyndar að ein best heppnaða ákvörðun mín um ráðningu er ráðning um andlit þeirra hagsmunasamtaka sem ég starfaði fyrir um árabil: móttökufulltrúinn.

 

Ég verð að segja að alltaf þegar ég kem í RÚV - stundum stressaður, í flýti og með hugann við málefnið sem spyrja á um - líður mér betur þegar ég er boðinn fallega velkominn og fæ inngöngupassa og skrái mig inn; enginn skyldi vanmeta þau mikilvægu störf sem eru andlit, rödd og jafnvel andi hvers vinnustaðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna

Það er ekki öllum gefið að sýna glaðlegt viðmót, kurteisi og þjónustulund. Þeir sem gera þetta vel koma oft meiru til leiðar en þá grunar, bara eitt vingjarnlegt bros er heilmikils virði  Það mættu margir huga aðeins að þessu.

Anna, 29.8.2008 kl. 22:54

2 Smámynd: Gísli Tryggvason

Sammála; kjarni málsins.

Gísli Tryggvason, 29.8.2008 kl. 23:06

3 Smámynd: Hrannar Baldursson

Ég hef upplifað það sama hjá RÚV. Einstakt að koma þangað í heimsókn, í hvert einasta skipti.

Hrannar Baldursson, 30.8.2008 kl. 12:33

4 Smámynd: Heimir Lárusson Fjeldsted

Tek undir hvert orð ykkar!

Heimir Lárusson Fjeldsted, 30.8.2008 kl. 13:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband