Lík í óskilum - lög eða siðferði?

Ekki skal ég gera lítið úr lögum - enda löglærður. Lög leysa þó ekki allan vanda. Með aldrinum og smá reynslu lærist manni að lög - þó mikilvæg séu og stundum góð - eru ekki til þess fallin að taka á öllum álitamálum mannlegs lífs - og dauða.

 

Þess vegna var ég ósáttur við fyrirsögn sjónvarpsfréttar RÚV um stóra listalíksmálið í kvöld og eftirfarandi megininntak:

 

Engar reglur eru til.

 

Þetta er ekki rétt. Að vísu sagði heimildarmaðurinn, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæmis, þetta ekki og benti á að (frekari) lög vantaði um meðferð líks frá andláti og fram að greftrun; það kann að vera rétt enda er ég sammála honum um efni málsins. Kjarni fréttarinnar er hins vegar ekki réttur að mínu mati því þótt settar lagareglur skorti að öðru leyti en að til er refsiákvæði um ósæmilega meðferð á líki þá kunna að vera til óskráðar lagareglur um málið - og einkum þó siðareglur (sem auk þess fylla upp í vísireglur eins og þá sem bannar "ósæmilega" meðferð á líki)!

 

Fyrrum sveitungi minn, listamaðurinn og eitt sinn forsetaframbjóðandi, Snorri Ásmundsson, hefur óskað eftir að því við deyjandi fólk - opinberlega - að fá lík þeirra í því skyni að sinna listagyðjunni. Þó að ég sé síður að mér í listum og þótt bókmenntir fari mis vel með lík (eins og fyrirsögnin og sakamálabókmenntir staðfesta) þá er ljóst að sama á ekki við um allar listgreinar. Svarið er einfalt; eins og þáverandi fjármálaráðherra sagði - að vísu á sviði þar sem lög eru nú áskilin:

 

Svona gera menn ekki.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna

Snorra hefur tekist að ræsa lötustu heilasellur með þessari auglýsingu.  Er maðurinn að meina þetta ? Er hann stríðinn ?  Er hann lasinn ? Meinar hann að auglýsingin sé list og diskúteringarnar í kjölfarið þ.m.t ?  Fólki finnst þetta lítið fyndið, bara siðlaust.

Anna, 11.8.2008 kl. 21:49

2 Smámynd: Gísli Tryggvason

Sammála; Snorra þekki ég lítið en af framgöngu hans undanfarin ár þykist ég vita að af því sem þú nefnir sé hann a.m.k. stríðinn.

Gísli Tryggvason, 11.8.2008 kl. 21:52

3 Smámynd: Þórir Kjartansson

Þetta er nú það aumasta sem maður hefur heyrt frá þessum svokölluðu ,,listamönnum", sem kunna enga listsköpun en reyna stöðugt að  vekja á sér athygli með einhverjum fíflalátum.  Hitt á svo eftir að koma í ljós hvort einhver  grautarhaus leigir líkið af henni mömmu sinni eða afa í þessa auglýsingastarfsemi.  Ekki er nein hætta á að líkið verði  með mótþróa.  Ja hvað gera sumir ekki fyrir peninga.

Þórir Kjartansson, 11.8.2008 kl. 21:55

4 Smámynd: Anna Guðný

Það sem ég hef þekkt Snorra í gegnum árin, þá kemur þetta mér ekki á óvart. Í listum jafnt og í sjónvarpsþáttagerð þarf að toppa það sem hefur verið gert áður. Snorra finnst eflaust athyglin góð, er stríðinn og svo held ég að honum finnist hann alls ekki vera að fara fram á neitt "ósæmilegt" Og ég trúi því að hann myndi umgangast líkið að fullri virðingu. En svo annað mál hvað okkur hinum finnst um málið. Ég spurði eiginmanninn í kvöld hvort hann gæti hugsað sér að gefa leyfi til að nota líkama sinn eftir dauða. Og því var fljótsvarað neitandi. Ég gæti ekki hugsað mér það heldur. En þó ef af einhverjum, þá frekar Snorra en flestum öðrum.

Anna Guðný , 12.8.2008 kl. 00:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.