Hugsað til Kína

Þessir atburðir á Torgi hins himneska friðar held ég að hafi haft mikil áhrif á mig fyrir hálfri ævi minni - þegar ég var nýfarinn að fylgjast með heimsmálunum og hélt að allt horfði til batnaðar. Kannski hef síðan - þrátt fyrir meðfædda reglutilhneigingu - hallast meira að þeim sem leyfa sér að efast um (al)valdið. Ég var í miðjum stúdentsprófum í Danmörku, um það bil að taka stúdentspróf í bæði spjótkasti og badminton - sem ég stóð mig ekki vel í - og líka í "sport og politik" - sem ég fékk toppeinkunn í. Þessi hugrenningartengsl leituðu nú á mig í dag, á sjálfu ólympíuárinu þegar leikarnir verða í Kína.


mbl.is 19 ár frá fjöldamorðum á Torgi hins himneska friðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Auðunsson

Það er löngu kominn tími til að kínversk stjórnvöld geri hreint fyrir sínum dyrum. Hafði líka mikil áhrif á mig persónulega, ég var í hópi íslendinga stöddum í Kóreu á þessum tíma og við mótmæltum þessu harkalega fyrir framan kínverska sendinefnd, þrátt fyrir að okkur væri gert erfitt fyrir. Þurftum meðal annars að "stela" rútu sem tékkar höfðu til umráða þar sem rútan okkar kom ekki til að taka okkur þangað sem mótmælin fóru fram. Komust samt að lokum. Mótmæli gegn stjórnvöldum, sama hver þau eru, er heilbrigt.

Guðmundur Auðunsson, 9.6.2008 kl. 12:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband