Brjóst á berangri - hvar, hvenćr og hvernig ber!

Mér finnst ekki sanngjarnt - eins og sumir bloggarar hafa gert í dag - ađ ljóstra upp um aprílgabb áđur en ţau eru um garđ gengin eđa hafa náđ áhrifum; ţess vegna beiđ ég fram á kvöld međ ađ blogga um ţetta besta aprílgabb dagsins - sem ég hef séđ. Ađ vísu hef ég ekki enn séđ fréttir eđa blogg um ađ ţetta aprílgabb en í vissu minni um ţađ lét ég í raun gabbiđ hafa áhrif á mig - ég sat apríl, en hljóp ekki apríl!

 

Ég er alltaf međ sunddót í bílnum og á kort í flestar sundlaugar á suđvesturhorninu og fer gjarnan í pottinn í ţeirri laug sem ég er nćst staddur. Síđdegis í dag átti ég fund í vesturborginni og hefđi komiđ til greina ađ fara í mína gömlu heimalaug, Vesturbćjarlaugina, í tengslum viđ fundinn; af ótta viđ ađ vera myndađur á leiđ úr lauginni eins og aprílgabbađur syndaselur lét ég Kópavogslaugina duga.

 

Viđ ţetta skemmtilega aprílgabb, sem mátti sjá víđar á blogginu, rifjađist upp fyrir mér ágćtis blogg (sem ég tek undir) ofurbloggara sama dag og ég byrjađi ađ blogga fyrir tveimur vikum síđan og athugasemdir viđ ţađ um synjun viđ sćnskri brjóstaberun í sundi en athugasemdir viđ ţá frétt  hljóta ađ slá met (taldi ţá um 40).

 

Enda ţótt ég ţykist vera feministi virđist mér ţarna of langt gengiđ í "jafnréttisbaráttu."

 

Ţó ađ tilvísađar athugasemdir viđ bloggiđ og fréttina segi eiginlega allt sem segja ţarf vil ég freista ţess ađ slá botninn í ţetta međ ţví ađ bćta viđ ađ ţetta mál er afstćtt eins og fleiri; ţađ er ekki sama hvenćr, hvar, hvernig o.s.frv. - t.d. hvort um er ađ rćđa brjóst í svefnherbergi, á sólarströnd, í sundi, brjóstagjöf á brautarstöđ - eđa franska forsetafrú. Svo skiptir máli afstađan milli fólks - er um ađ rćđa hjón eđa tvo neytendur!

 

M.ö.o. eru sundlaugargestir - neytendur - á Íslandi ekki vanir ţví ađ brjóst séu beruđ á "berangri" allan ársins hring. Ţó ađ ţađ hafi vitaskuld tíđkast í góđviđrinu sem ávallt var í sundlaug Akureyar - uppi í sólarbekkjabrekkunni - er ekki ţar međ sagt ađ hiđ sama eigi viđ í suddanum sunnanlands. (Skyldi einhver efast um réttmćti ţess ađ ég geri greinarmun á landshlutum minni ég á ađ mismunun eftir búsetu er ekki bönnuđ "berum" orđum í stjórnarskránni, 65. gr.) Ég er ansi hrćddur um ađ jafnvćgiđ myndi raskast í hópi sundlaugarneytenda - bćđi til og frá og jafnt međal karla og kvenna - ef konur fćru ađ mćta ţar berar ađ ofan.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Hummm

Ómar Ingi, 1.4.2008 kl. 22:07

2 Smámynd: Gísli Tryggvason

Jamm

Gísli Tryggvason, 1.4.2008 kl. 22:27

3 Smámynd: Gunnar Gunnarsson

já.

Gunnar Gunnarsson, 1.4.2008 kl. 22:40

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband