Gott hjá ríkisstjórninni

Þetta hljómar vel og er í samræmi við óskir mínar um slíkt gagnvart félagsmálaráðherra við yfirtöku ríkisins á slíkum íbúðarlánum í erlendri mynt til langs tíma eins og komið hefur fram á vefsíðu embættisins: www.talsmadur.is. Til skamms tíma þarf ég hins vegar að setja mig í samband við ríkisbankana þrjá vegna frystingar til bráðabirgða.


mbl.is Afborganir verði frystar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Tryggvason

Sæl Eyrný og takk fyrir spurningarnar; það er athyglisvert að ríkisstjórnin sendir þetta frá sér sem tilmæli (nokkuð sem ég hef notast við úr því að ég hef aðeins vald til þess að krefjast upplýsinga en annars aðeins áhrifavald) en ekki fyrirmæli til ríkisbanka. Í þessu tilviki kann að vera eðlilegt að notast við tilmæli enda bankarnir ekki undir beinni stjórn ríkisstjórnar og úr því að gengismarkaður er óvirkur eins og þú segir. Að sama skapi held ég að ummæli PB lýsi veruleikanum vel. Ég þekki hins vegar enn ekki svarið við síðari spurningunni en vonandi kemur það í ljós í væntanlegum viðræðum mínum við ráðherra og banka.

Gísli Tryggvason, 15.10.2008 kl. 22:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband