Auglýsingin var rétt

Um daginn heyrđi ég ítrekađ auglýsingu í ljósvakamiđlum eitthvađ á ţá leiđ ađ göturnar vćru helst tómar ţegar Eurovision-keppni stćđi yfir og hér um áriđ ţegar JR í Dallas var skotinn - og svo ţegar Evrópumeistarakeppni í fótbolta stćđi yfir eins og nú. Ég sannreyndi ţetta í kvöld ţví ţegar ég hjólađi heim af fundi - ađ vísu á matmálstíma - leiđ mér nćrri ţví eins og Palla sem var einn í heiminum, sem var ágćtt. Göturnar voru hálftómar, sem var líka fínt. 

 

Hálftómar götur öftruđu mér ţó ekki frá ţví ađ stytta mér leiđ hér viđ stórfljótiđ á mörkum Smára- og Lindahverfis og datt mér ţá í hug samlíking um ađ hjólreiđar hér á höfuđborgarsvćđinu eru svolítiđ eins og ađ reyna ađ tala erlent tungumál ţví eins og kennarinn minn sagđi einu sinni:

 

Á erlendri tungu segirđu ţađ sem ţú getur - en ekki ţađ sem ţér býr í huga.

 

Á hjóli ferđu ţar sem ţú kemst en ekki ţađ sem ţú vilt (ef ţú ćtlar ađ fara eftir hjólreiđa- og göngustígum).

 

Ég hefđi betur hjólađ eftir götunum ţví í fyrsta skipti á ćvinni hvellsprakk á hjólinu viđ eitt byggingarsvćđiđ - á splunkunýju dekki og slöngu síđan í morgun. Ég sem hélt ađ ég hefđi fundiđ sértćka lausn á vandanum viđ síhćkkandi bensínverđ. Almenna lausn hef ég enn síđur.


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband