Je blogge, donc je suis - látið verkin tala

Fór um daginn, aldrei þessu vant, á listasýningu - í mínum gamla heimabæ, Akureyri. Þar sem óvenju margt höfðaði jafnvel til mín - sem er frekar lítið listrænn - verð ég að mæla með sýningunni, Bæ, bæ Ísland; einkum var þó vakning að horfa og hlusta á mynd- og hljóðverk (kann ekki hið listfræðilega hugtak yfir vídeóhugleiðingar sem þessar) Þorvaldar Þorsteinssonar sem snertu tilvistarlegan streng í mér og vöktu upp þessa fyrirsögn; hver er ég og hvers vegna?

 

Þar sem ekki er um starfsemi í arðsemisskyni að ræða get ég víst leyft mér að skora á ykkur að leggja leið ykkar norður og taka tíma í að láta (lista)verkin tala!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband