Palin ekki galin

Fréttin - og einkum fyrirsögnin - staðfestir upphafsmat mitt, þ.e. að þó að Obama muni sennilega vinna nokkuð stóran sigur í nótt þá var Palin ekki galin - þ.e. sterkur og taktískur leikur - frá repúblikanskum sjónarhóli.

 

Skoðun mín á henni (ef ég væri bandarískur kjósandi) kom hins vegar snemma fram hér og var áréttuð fyrir mánuði.


mbl.is Palin hefur áhrif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Ég held að Palin hafi verið snaran í meðvituðu sjálfsmorði republikana í þessum kosningum. Þeir hafa varla viljað taka við brunarústunum eftir sjálfa sig, enda náðu þeir að koma markmiðum sínum fram í bili. Þ.e. Að færa völd og fjármuni yfir á færri hendur en nokkru sinni fyrr og því nálgast pípudraum globalistanna um alræði.

Gott verður að hafa á bak við eyrað að hugsanlega hrynur efnahagurinn þarna endanlega eftir kosningar og þá rís upp Efnahagsbandalag Norður Ameríku úr þeim rústum, eða hvað? North american union með Amero að gjaldmiðli eins og hefur verið á teikniborðinu lengi og Ron Paul hefur varað við af mikilli elju.

Ég hef annars grun um að Obama muni ekki reynast sá frelsari, sem menn vænta. Hann er af nákvæmlega sama slekti. Aðalráðgjafi hans í Utanríkismálum er Zibigniev Brezinsky, sem er af nákvæmlega sömu klíku og raðaði sér um Bush. Wolfowich, Pearl, Cheyney  etc...

Jón Steinar Ragnarsson, 5.11.2008 kl. 02:34

2 Smámynd: Helgi Jóhann Hauksson

Reyndar var gagnrýnið viðtal við núverandi bæjarstjóra bæjarins hennar Palin sem líka er kona.

Hún var spurð hvort hún teldi bæjarstjórastarfið góðan undirbúning fyrir forsetaembættið og taldi hún eindregið svo vera. Þá var hún spurð hvernig gengi að reka slökkvilið bæjarins, hún varð svolítið vandræðaleg og hvað bæinn ekki reka neitt slökvilið heldur hafa þjónustusamning við stærra bæjarfélag, -en skólana hvernig gengur rekstur skóla og leikskóla bæjarins? - bærinn rekur heldur enga skóla eða leikskóla, ok en félagslega þjónustu yfir höfuð - nei bærinn rekur enga félagsþjónsutu eða félagslega þjónsu yfir höfðuð, .... en hvað gerir þá bæjarstjórinn? - jú á miðvikudögum höfum við starfsmannafund kl 10 og .... og ... og .. svo skrifa ég undir ávísanir á fimmtudögum - það er svona það helsta.

Helgi Jóhann Hauksson, 5.11.2008 kl. 14:49

3 Smámynd: Púkinn

Palin var að mínu mati fáfróður, vanhæfur einstaklingur, með stórhættulegar trúarhugmyndir.  Heimurinn má vera þakklátur fyrir að hún endaði ekki hársbreidd frá valdamesta embætti heims.

Púkinn, 5.11.2008 kl. 16:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband