Sunnudagur, 4. október 2009
Hverjir bera mögulega ábyrgð?
Nú þegar liðið er ár frá neyðarlögum og bankahruni og aðeins mánuður er þar til skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verður birt gæti verið fróðlegt að velta fyrir sér fræðilegum möguleikum á ábyrgð á
- aðdraganda hrunsins og
- afleiðingum þesa.
Ábyrgð getur bæði komið til vegna
- verka einstakra aðila og
- athafnarleysi þeirra sem áttu að sýna frumkvæði.
Ég ætla að freista þess að greina í einfaldri og lítt rökstuddri töflu:
- einstaka hópa (en ekki persónur) sem almennt kunna að verða látnir bera ábyrgð,
- líkindi á ábyrgð að mínu mati,
- tegund ábyrgðar - f.o.f. lagaleg (og þá einkum bótaábyrgð og refsiábyrgð) en annars t.d. starfsleg eða pólitísk,
- hvaða aðili fer með aðalfrumkvæði að rannsókn og
- hver fer væntanlega með lokaúrskurðarvald í því efni.
Aðilar | Líkindi | Tegund | Aðalfrumkvæði | Úrskurðarvald |
Ráðherrar | Líklegt | Lagaleg | Alþingi | Landsdómur |
Þingmenn | Líklegt | Pólitísk | Rannsóknarnefndin | Kjósendur |
Embættismenn | Ólíklegt | Starfsleg | Rannsóknarnefndin | Ráðherrar |
Opinberir stjórnarmenn | Ólíklegt | Lagaleg | Rannsóknarnefndin | Ráðherrar |
Endurskoðunarfyrirtæki | Líklegt | Bótaábyrgð | Lögmenn (ríkis) | Dómstólar |
Kröfuhafar | Já | Tap (hluta) | Skilanefndir | Dómstólar |
Lántakendur | Já | Skuldahækkun | Alþingi | Dómstólar |
Hlutabréfaeigendur | Já | Tap | Á vart við | Eðli áhættufjár |
Innistæðueigendur | Nei | Full ábyrgð | Stjórnvöld | Alþingi |
Peningamarkaðssjóðfélagar | Já | Tap hluta | Stjórnvöld | Dómstólar |
Bankar | Ekki til | Á vart við | Alþingi | Kröfuhafar |
Stjórnarmenn banka | Líklegt | Refsi-/ bóta- | Saksókn, lögmenn | Dómstólar |
Æðstu stjórnendur banka | Líklegt | Refsi-/ bóta- | Saksókn, lögmenn | Dómstólar |
Millistjórnendur banka | Ólíklegt | Refsi-/ bóta- | Saksókn, lögmenn | Dómstólar |
Aðrir starfsmenn banka | Nei | Refsi-/ bóta- | Saksókn, lögmenn | Dómstólar |
Fjölmiðlar | Ólíklegt | Markaðsleg | Netið | Lesendur |
Vafalaust gleymi ég einhverjum og má þá bæta úr því í athugasemdum, svo og ef ég ofmet eða vanmet ábyrgð einhverra aðila. Sama er að segja um rökstuðning sem eðli málsins samkvæmt er knappur í slíku töfluformi. Loks þarf ekki að deila um það að borgarar landsins og ekki síst skattborgarar (hérlendis og erlendis) munu augljóslega bera byrðar vegna hrunsins á endanum.
Samþykktu Icesave blindandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Gísli. Athyglis og umhugsunarvert. Þetta með stjórnarmenn banka og æðstu stjórnendur banka er mjög umhugsunarvert. Þar liggur væntanlega svikavandinn.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 5.10.2009 kl. 08:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.