Útrétt sáttahönd þreytist

Nú hafa fulltrúar lántakenda beðið í heila viku eftir svari frá félags- og tryggingamálaráðherra um hvort þeir fái aðild að endurskipulagningu skulda heimilanna. Stjórnvöld hafa fundað með fulltrúum kröfuhafa, þ.m.t. ASÍ - sem stendur að lífeyrissjóðum sem eru meðal kröfuhafa. Því verður ekki trúað að stjórnvöld afþakki gott boð um samstarf við neðangreinda aðila - eftir nær árs bið eftir að tekið verði í eitt skipti og með heildstæðum hætti á skuldum neytenda í kjölfar forsendubrests við gengisfall um páskana í fyrra og gengishrun í kjölfar bankakreppu.

 

Lengur verður vart beðið eftir að tekið verði í sáttahönd eftirfarandi aðila sem starfað hafa saman frá sameiginlegu ákalli 11. febrúar sl., þ.e.

  • Búseta á Norðurlandi,
  • Félags fasteignasala,
  • Hagsmunasamtaka heimilanna,
  • Húseigendafélagsins og
  • talsmanns neytenda.

 

Sjö mánuðum síðar endurnýjuðu sömu aðilar ákallið ásamt fleirum og í kjölfarið var fundað með ráðherra og þingflokkum stjórnarflokkanna auk ASÍ, Neytendasamtakanna og þingflokks Framsóknarflokksins og boðið upp á viðræður um leiðir til niðurfærslu. Á fundinum með ráðherra var óskað eftir fullri og beinni aðild að því að móta aðgerðir. Ráðherra veit að beðið er eftir svari.

 


mbl.is Ræða um greiðsluvanda heimila
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Marinó G. Njálsson

Já, þetta er furðuleg uppákoma hjá stjórnvöldum.  Skilja þau ekki að staða ASÍ er sem kröfuhafi ekki fulltrúi lánþega.  En meðan við vitum ekki hvað á að bjóða, þá hef ég tekið þá afstöðu að hvorki lofa né lasta það sem verður hugsanlega boðið.  Dag skal að kvöldi lofa og mey að morgni.

Marinó G. Njálsson, 23.9.2009 kl. 23:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband