Stóra brjóstaberunarmálið; stefnir í nokkuð afdráttarlausa niðurstöðu (1:4)

Nú þegar óformlegri skoðanakönnun er í þann mund að ljúka um hvort leyfa eigi konum að vera berbrjósta á almennum sundstöðum á Íslandi er ljóst að niðurstaðan er nokkuð skýr - og virðist hafa verið nokkuð viðvarandi tilhneiging frá upphafi skoðanakönnunarinnar fyrir tveimur sólarhringum:

 

Mikill meirihluti (80%) þeirra sem greiddu atkvæði (rúmlega 150) úr hópi atkvæðisbærra, þ.e. lesenda bloggsins (rúmlega 550), er hlynntur því að leyfa konum að bera sig að ofan á sundstöðum. Fáir voru hlutlausir og um 20% voru því andvígir.

 

Ég er nokkuð hissa og er enn á því að niðurstaðan yrði öndverð ef á reyndi meðal reglulegra sundlaugargesta - án þess að ég lofi að gera könnun um það í heita pottinum á morgun. Það sem skiptir máli er afstaða þeirra sem ráða þessu líklega í raun (sveitarstjórnarfulltrúa) - og þó enn fremur kvennanna sjálfra því ég er viss um að meirihluti þeirra mun ekki breyta háttum sínum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband