Þáði kampavín

Ég var á leið heim með flugi um daginn og keypti, aldrei þessu vant, smáræði í flugbúðinni og gaf upp umbeðna kennitölu; komst þá upp að ég átti afmæli þann dag og þáði ég boð um kampavín fyrir vikið - eins og hver annar neytandi.

 

Mér finnst hins vegar ekki hægt að embættismenn eða stjórnmálamenn þiggi gjafir stöðu sinnar vegna eins og ég hef rökstutt í ítarlegu máli á tilvísuðum stöðum.

 

Ég hef ekki greint sömu stöðu gagnvart stjórnendum fyrirtækja en mér hefur lengi fundist of í lagt á því sviði - enda ljóst hverjir borga brúsann á endanum: neytendur.


mbl.is Má flokka sem mútur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Mjór er mikils vísir, Gísli minn, og auðsætt að næst ferðu í lax í boði Union Carbide!

Þorsteinn Siglaugsson, 26.8.2008 kl. 08:51

2 Smámynd: Guðbjörn Guðbjörnsson

Sæll Gísli

Hvað finnst þér um konfektkassa sem fyrirtæki færa viðskiptavinum sínum - opinberum sem einkafyrirtækjum - fyrir jólin?

Kveðja,

Guðbjörn Guðbjörnsson, 26.8.2008 kl. 16:49

3 Smámynd: Gísli Tryggvason

Sæll Þorsteinn; slíkan laxveiðitúr myndi ég afþakka - og ekki bara vegna þess að ég er ekki fiskinn.

Blessaður Guðbjörn; ég er reyndar lítið hrifinn af því. Mér finnst reyndar að samkeppnislögmálin eigi að afgreiða það - því minna sem fyrirtæki eyða í óþarfa því betri kjör eiga þau að geta boðið viðskiptavinum sínum, þ.m.t. neytendum sem að vísu eru ekki þeir sem fá stærstar gjafirnar. Ég tek þó eftir að fólk leggur nokkuð upp úr þessum gjöfum og stærð þeirra og manngreinaráliti. Á samskiptum fyrirtækja sín á milli hef ég takmarkaða skoðun en þarna held ég að fjölmiðlar og almenningsálit veiti sæmilegt aðhald og ekki þurfi löggjöf að svo stöddu. Sjálfur reyndi ég að gæta þess að þiggja ekki stærri gjafir frá fyrirtækjum í fyrra starfi en penna og dagatalsklukkur sem nýttust í vinnunni. Í núverandi embætti hef ég ekkert þegið frá fyrirtækjum á neytendamarkaði (nema það sem aðrir neytendur fá vegna persónulegra viðskipta eins og mig minnir að ég nefni í tilvísaðri grein). Þá velti ég því mikið fyrir mér hvort ég ætti að þiggja veisluboð í 100 ára afmæli fyrirtækja en gerði það.

Gísli Tryggvason, 27.8.2008 kl. 01:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.